05.05.1981
Sameinað þing: 79. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3971 í B-deild Alþingistíðinda. (4038)
285. mál, húsnæðismál Náttúrugripasafnsins
Menntmrh. (Ingvar Gíslason):
Herra forseti. Ég vil svara þessari fsp. um húsnæðismál Náttúrugripasafnsins, eins og hv. fyrirspyrjandi orðar það, en mér finnst eðlilegra að tala um Náttúrufræðistofnun, eins og stofnunin heitir. Þá vil ég upplýsa það, að unnið er að því af minni hálfu og hefur verið gert um sinn að reyna að leysa úr húsnæðisvanda Náttúrufræðistofnunar.
Núverandi húsnæði Náttúrufræðistofnunar Íslands er sem hér segir samkv. upplýsingum sem ég hef frá stofnuninni sjálfri og með orðalagi hennar, held ég, að það er á 3. hæð á Laugavegi 105 og Hverfisgötu 116. Háskólinn keypti þarna hæð fyrir happdrættisfé á sinni tíð. Þetta húsnæði, sem Háskólinn á þarna, er að flatarmáli 600 fermetrar. Þar af er sýningarsalur 100 fermetrar. Sýningarsalurinn, náttúrugripasafnið má segja, er 100 fermetrar. Að öðru leyti er þetta húsnæði allt notað jöfnun höndum fyrir vinnustofur og skrifstofur svo og geymslur fyrir vísindaleg söfn náttúrugripa og bækur. Einnig segir svo í lýsingu sem ég hef frá Náttúrufræðistofnun:
„Hálf fjórða hæð í sama húsi, sem tekin hefur verið á leigu,“ — það er líka umráðahúsnæði stofnunarinnar, — „leigutími þessa húsnæðis er nú að renna út og hefur stofnuninni verið gert að rýma það fyrir 1. júlí á þessu ári. Stærð þess er 291.4 fermetrar samkv. leigusamningi. Í húsnæði þessu eru þrjár vinnustofur, en að öðru leyti er húsnæðið notað sem geymslur fyrir vísindaleg söfn náttúrugripa og bækur. Eigendur þessa húsnæðis eru erfingjar Sveins Egilssonar bifreiðasala. Þeir vilja selja alla 4. hæð hússins, sem er um 600 fermetrar, en eru einnig til viðtals um sölu á þeim hluta sem Náttúrufræðistofnun hefur á leigu. Hinn hluta hæðarinnar hefur Ríkisendurskoðunin á leigu og rennur sá leigusamningur út árið 1982.“
Ég vil geta þess, að 3. febr. skrifaði ég fjmrh. bréf út af þessu máli, í beinu framhaldi af bréfi sem mér barst 30. jan. og reyndar kom í hendur mínar 2. febr., þannig að strax daginn eftir að ég fékk þetta bréf frá Náttúrufræðistofnun ritaði ég fjmrh. bréf og mælti þar eindregið með því, að leitað yrði eftir kaupum á húsnæðinu, a. m. k. þeim hluta sem Náttúrufræðistofnun hefur til umráða. Fjmrh. fól síðan framkvæmdadeild Innkaupastofnunar ríkisins að skoða umrætt húsnæði, þ. e. 4. hæðina. Hefur framkvæmdadeildin þegar gert það, skoðað húsið og skilað fjmrn., fjárlaga- og hagsýslustofnun, skýrslu og skoðunargerð og mælir þar með því, miðað við aðstæður, að ríkissjóður kaupi húsnæðið á 4. hæð.
En í tilefni þessarar fsp. vil ég ítreka það, að ég vinn að lausn þessa máls í samræmi við þá stefnu sem mörkuð hefur verið, þ. e. að kaupa hluta af 4. hæð í húsi Sveins Egilssonar og helst alla hæðina í þágu Náttúrufræðistofnunar. Þetta er að mínum dómi byggt á því bréfi sem ég fékk frá Náttúrufræðistofnun í lok janúar í vetur og ég greindi frá áðan. Hitt er rétt, sem fram kom hjá hv. fyrirspyrjanda, að þegar horft er til lengri framtíðar þarf náttúrlega að huga að ýmsu öðru en þessum kaupum. Og ég held að það sé rétt, að það þurfi að huga að því og gera ráð fyrir því, að áður en langir tímar líða verði reist sérstakt hús fyrir Náttúrufræðistofnunina og þá verði þar m. a. góður sýningarsalur fyrir Náttúrugripasafnið. Ég teldi mjög æskilegt að þetta hús væri á háskólasvæðinu, því að vissulega er Náttúrufræðistofnun nátengd Háskóla Íslands í eðli sínu og í raunveruleikanum. En á þessu stigi held ég að ekki sé mögulegt að gera ráð fyrir sérbyggingu fyrir Náttúrufræðistofnun, þ. e. ekki nákvæmlega nú, heldur verði áfram reynt að vinna að því að leysa brýnasta vanda stofnunarinnar með kaupum á því húsnæði sem til boða stendur þarna inni á Hverfisgötu og stofnunin gæti þá sætt sig við. Hins vegar get ég tekið undir það og tel það réttmæta ábendingu hjá fyrirspyrjanda hér áðan, að eðlilegt væri að vinna að þessu máli skipulega og þá e. t. v. með skipun nefndar í þessu máli. En sem sagt, þetta eru þær upplýsingar sem ég hef á þessu stigi, og kjarni málsins er sá, að ég er að reyna að koma því fram sem Náttúrufræðistofnun sjálf hefur beint til mín í sambandi við húsnæðismál sín.