05.05.1981
Sameinað þing: 79. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3972 í B-deild Alþingistíðinda. (4040)
391. mál, stundakennarar Háskóla Íslands
Fyrirspyrjandi (Pétur Sigurðsson):
Herra forseti. Sumar vinnudeilur eiga mjög greiðan aðgang inn í umr. hér á hv. Alþingi, aðrar ekki. Og um sumt af því, sem deilt er um, vitum við næsta lítið þótt mikið fari fyrir þessum málum í fjölmiðlum. Ekki alls fyrir löngu var deila uppi milli stundakennara við Háskóla Íslands og skólans. Því var þessi fsp. lögð fram á þeim tíma til glöggvunar fyrir okkur þm. á því, um hvað væri deilt og hverjir stæðu að deilunni sem slíkri. Fsp. er til hæstv. menntmrh. og hljóðar svo:
„Hversu margir stundakennarar við Háskóla Íslands gegna föstu starfi hjá stofnunum ríkisins, þar með talin ráðuneyti og þjónustufyrirtæki?“