06.05.1981
Efri deild: 92. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3996 í B-deild Alþingistíðinda. (4078)

292. mál, Þróunarsamvinnustofnun Íslands

Frsm. (Eiður Guðnason):

Herra forseti. Allshn. hefur fjallað um frv. til 1. um Þróunarsamvinnustofnun Íslands sem ætlað er að taka við af þeirri stofnun sem áður hét Aðstoð Íslands við þróunarlöndin, og allshn. leggur einróma til að frv. verði samþykkt óbreytt.