06.05.1981
Efri deild: 92. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3997 í B-deild Alþingistíðinda. (4081)

311. mál, almenn hegningarlög

Frsm. (Eiður Guðnason):

Herra forseti. Allshn. hefur fjallað um frv. til l. um breytingu á almennum hegningarlögum, 311. mál. Þar er um að ræða smávægilega breytingu á hegningarlögunum til samræmis við samning á vegum Sameinuðu þjóðanna um ráðstafanir gegn glæpum og hryðjuverkum og töku gísla. Það varð samdóma niðurstaða n. að mæla með því, að þetta frv. yrði samþ. eins og það liggur fyrir.