10.11.1980
Neðri deild: 14. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 601 í B-deild Alþingistíðinda. (423)

33. mál, málefni Flugleiða hf.

Sjútvrh. (Steingrímur Hermannsson):

Herra forseti. Ég heyri að hv. þm. er ekki enn raknaður úr rotinu eftir flokksþing þeirra Alþfl.-manna. Það, sem hann sagði, er algerlega rangt. Hann hefur ekki fylgst með. Hvert einasta bréf, sem ég hef ritað, er í höndum n. og hefur legið þar frammi. Það var sannarlega að gefnu tilefni að ég spurði fyrirtækið að því, hvort það óskaði eftir aðstoð. Ég vildi láta það sjálft ákveða hvort það óskaði eftir aðstoð eða ekki.