11.11.1980
Sameinað þing: 16. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 609 í B-deild Alþingistíðinda. (442)

347. mál, flugstöð á Keflavíkurflugvelli

Fjmrh. (Ragnar Arnalds):

Herra forseti. Ég held að ekki sé tímabært að fara mörgum orðum um það mál sem fsp. er hér gerð um, þar sem ljóst er að fjöldamargt er óvíst í undirbúningi þess og raunar beggja málanna sem hér voru nefnd. Bæði þurfa þau miklu ítarlegri athugunar við en fram hefur farið enn. Ég vil segja um bæði þessi mál, að þau séu enn á undirbúnings- og umræðustigi, og ég vil leggja á það áherslu hér, að að sjálfsögðu verða engar ákvarðanir teknar um byggingu flugstöðvar ellegar um byggingu olíubirgðastöðvar í Helguvík öðruvísi en með samþykki ríkisstj. og Alþingis.