15.05.1981
Sameinað þing: 83. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4445 í B-deild Alþingistíðinda. (4500)

242. mál, rannsóknir á háhitasvæðum landsins

Frsm. (Guðmundur G. Þórarinsson):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir nál. allshn. um skipulegar rannsóknir á háhitasvæðum landsins. Allshn. fékk umsagnir um till. frá Orkustofnun og iðnrn. Er þar skemmst af að segja, að n. varð sammála um, að hér væri um þarft mál að ræða; og mælir með samþykkt till. óbreyttrar.