15.05.1981
Neðri deild: 95. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4491 í B-deild Alþingistíðinda. (4531)

290. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Guðmundur J. Guðmundsson:

Herra forseti. Í þessari till. hv. þm. er breyting þess efnis, að það sé ekki hægt að takmarka lagagrein með reglugerð. Reglugerðir geta ekki takmarkað lög og það er sjálfgert að segja nei.