15.05.1981
Neðri deild: 96. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4512 í B-deild Alþingistíðinda. (4598)
275. mál, atvinnuleysistryggingar
Karvel Pálmason:
Herra forseti. Aðeins út af síðustu orðum hv. þm. Guðrúnar Helgadóttur um það, að hún telji að staðið hafi verið að fullu við loforðið til ASÍ. Nú vil ég spyrja þennan hv. þm.: Var það afstaða talsmanna Alþýðusambandsins á fundum heilbr.- og trn. að brtt., sem n. leggur fram, fell í sér að staðið sé að fullu við það sem lofað var og samið var um varðandi atvinnuleysistryggingarnar í síðustu samningum? Var það túlkun t. d. forseta Alþýðusambandsins, Ásmundar Stefánssonar, varaforseta Alþýðusambandsins, sem ég hygg að einnig hafi komið þarna á fund, að með þessari brtt., sem n. flytur varðandi 10. gr., sé að fullu staðið við það sem samið var um í síðustu samningum að því er varðar ASÍ gagnvart Atvinnuleysistryggingasjóði? Um þetta óska ég að fá svar. Ef þetta er túlkun forseta og varaforseta ASI, þá er það önnur túlkun en ég hef frá þessum sömu aðilum. Og það vil ég fá á hreint, ef hv. þm. getur upplýst það hér, að þeir hafi talið með þessari brtt. fyllilega staðið við öll loforð til Alþýðusambandsins varðandi atvinnuleysistryggingarnar.