18.05.1981
Neðri deild: 99. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4567 í B-deild Alþingistíðinda. (4739)
283. mál, lagning sjálfvirks síma
Alexander Stefánsson:
Herra forseti. Hér er um mál að ræða sem oft hefur verið rætt um hér á hv. Alþingi að þyrfti að ná fram að ganga. Ég er því einn af þeim sem fagna því sérstaklega að frv. um lagningu sjálfvirks síma í þessu formi skyldi hafa séð dagsins ljós á þessu þingi og allar horfur eru á að það verði afgreitt sem lög.
Í sambandi við þær aths., sem hér komu fram og margar eru réttmætar og hafa oft heyrst fyrr í sölum Alþingis, vil ég þó benda á að þetta frv. felur í sér miklu ákveðnari framkvæmdaáætlun en gerst hefur áður, hér er tekið á fjármálaþætti málsins í lögunum sjálfum. Ég vil benda mönnum á að í sambandi við 2. gr. frv. er tekið fram að tæki og búnaður til lagningar og uppsetningar sjálfvirks símasambands samkv. þeirri áætlun, sem gerð verður, eru undanþegin aðflutningsgjöldum og söluskatti við innflutning. Þetta er mjög mikilvægt atriði og léttir greinilega eða gerir a. m. k. meiri líkur til þess, að hægt verði að standa við framkvæmdina. Svo er aðalatriðið að í 3. gr. frv. er ákveðið gefin heimild til að taka lán, 20 millj. kr. árlega í 5 ár, til framkvæmdanna. Það gerir það að verkum að þetta tvennt, í 2. gr. og 3. gr., á að vera nægjanlegt fjármagn til að standa við áætlunina, miðað við þær framkvæmdir sem settar eru upp í áætluninni. Þetta tel ég mjög mikilvægt og bendir greinilega til að hér sé alvara á ferðum. Það væri ákaflega ólíklegt að við þm., sem hér erum, og væntanlegir þm. næstu 5 ár látum henda að ekki verði staðið við þessi lög, ef samþ. verða, því að bara talan 3200 heimili í landinu nægir til að sýna okkur fram á hvað hér er um mikilvægt mál að ræða fyrir íbúa sem eru utan við þéttbýliskjarna þessa lands og hafa ekki aðgang að sjálfvirkum síma.
Ég ætla ekki að tefja tímann og taka upp aftur umr. sem voru hér á s. l. hausti í sambandi við nauðsyn þess að auka þjónustu símans við dreifbýlið og landsbyggðina. Við höfum rætt hér áður í þessum sal um þessi mál og sýnt fram á með rökum hvað ójöfnuðurinn er gífurlegur í landinu á þessu sviði og hvað margt fólk býr við öryggisleysi að því er varðar þennan sjálfsagða öryggisþátt í búsetu manna. Ég ætla ekki að bæta þar við, en ég vonast til þess, að þm. taki höndum saman um að afgreiða þetta mál nú á þessu þingi, og einnig tek ég undir það, sem hér hefur komið fram, að við þurfum að fylgja eftir framkvæmdinni og sjá um að það verði staðið við lögin eins og þau verða væntanlega samþykkt.