20.05.1981
Efri deild: 112. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4667 í B-deild Alþingistíðinda. (4819)

301. mál, umferðarlög

Salome Þorkelsdóttir:

Herra forseti. Afstaða mín í þessu máli hefur reyndar áður komið fram. Ég treysti mér ekki til að standa að einhliða lögleiðingu bílbelta á þessari stundu, en ég ítreka enn mikilvægi fræðslu og áróðurs fyrir notkun bílbelta og tel að málið hefði þurft meiri umfjöllun áður en það er endanlega afgreitt. Ég mun því sitja hjá við afgreiðslu málsins.