20.05.1981
Neðri deild: 102. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4727 í B-deild Alþingistíðinda. (4951)

313. mál, steinullarverksmiðja

Iðnrh. (Hjörleifur Guttormsson):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til l. um steinullarverksmiðju á þskj. 981, en mál þetta er komið frá Ed., sem gerði á því nokkrar breytingar. Ég tel ekki ástæðu til að fjölyrða um efni frv. í þessari hv. deild. Þm. fengu um það á sínum tíma sérstaka skýrslu sem frv. þetta byggist á þó að nokkrar breytingar hafi verið á því gerðar.

Ég legg til að þessu máli verði vísað til 2. umr. og hv. iðnn.