21.05.1981
Sameinað þing: 88. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4803 í B-deild Alþingistíðinda. (5046)

99. mál, eldsneytisgeymar varnarliðsins

Karl Steinar Guðnason:

Herra forseti. Með skírskotun til þess, að engin efnisbreyting hefur átt sér stað með þessari brtt. frá upphaflegri till., og með skírskotun til ummæla utanrrh. nú áðan og einnig með hliðsjón af því, að nú hafa kommúnistar étið ofan í sig allt sem þeir hafa áður sagt um þessi mál og samþykkt með atkv. sínu þær mestu framkvæmdir sem átt hafa sér stað á Keflavíkurflugvelli frá styrjaldarlokum, þá segi ég já.