21.05.1981
Sameinað þing: 88. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4808 í B-deild Alþingistíðinda. (5062)

257. mál, húsakostur Alþingis

Jón Helgason:

Herra forseti. Ég vil aðeins þakka fjvn. fyrir góða afgreiðslu á þessari till. okkar forseta og lýsa yfir stuðningi við þá breytingu sem orðið hefur á till. í meðförum nefndarinnar. Það er augljóst mál, að hér er um að ræða verkefni sem þarf mikinn undirbúning og tekur langan tíma, en þeim mun meiri þörf er á því að hafist verði handa og þessi tímamót eru vissulega heppileg til þess að gera það.