21.05.1981
Efri deild: 115. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4816 í B-deild Alþingistíðinda. (5078)

325. mál, loðdýrarækt

Frsm. (Egill Jónsson):

Herra forseti. Nefndin hefur á fundi sínum nú í morgun fjallað um frv. til l. um loðdýrarækt og mælir með því einróma að það verði samþykkt héðan frá deildinni.