22.05.1981
Efri deild: 119. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4879 í B-deild Alþingistíðinda. (5183)
314. mál, stálbræðsla
Stefán Jónsson:
Herra forseti. Aðeins örfá orð fyrst og fremst til þess að þakka meðnm. mínum í iðnn. fyrir röskleg og drengileg vinnubrögð í umfjöllun þessa sérstaka máls sem lýtur að stálbræðslunni, samhliða því sem n. fjallaði um önnur frumvörp sem einnig lúta að heimildum fyrir ríkisstj. til þátttöku í stofnun nýrra iðnfyrirtækja.
Ég legg sérstaka áherslu á viðurkenningu af minni hálfu til þeirra stjórnarandstæðinga í n. við umfjöllun þessa sérstaka máls, þar sem um stálbræðslufyrirtæki er að ræða. Það geri ég vegna þess að orðrómur hafði heyrst um það, ákaflega óverðugur, að stjórnarandstæðingar í n. sýndu sig í því að bregða tæti fyrir þetta mál. Ég veit ekki hvernig þessi orðrómur komst á kreik, en hann er ósannur.
Ég get tekið undir það sem hv. þm. Kjartan Jóhannsson sagði um framlagningu þessara mála svo síðla á þinginu. Að vísu hef ég ekki haft neina aðstöðu til þess að kanna hvernig á þessum drætti stendur, en með tilliti til þess, að ég á ákaflega gott með að ímynda mér hvernig ég hefði hagað orðum mínum sem stjórnarandstæðingur um vinnubrögð af þessu tagi, þá álasa ég ekki hv. þm. Kjartani Jóhannssyni þó að hann kvæði prýðilega fast að orði um gagnrýni sína á vinnubrögð af tegund sem þessari. Það er alger óhæfa að fá inn á borð þm. á síðustu stundu brýn málefni af þessu tagi til afgreiðslu með svo skömmum fyrirvara, þar sem sérfræðingar og embættismenn ráðuneytanna hafa eytt árum jafnvel — og embættismennirnir a. m. k. mánuðum í undirbúninginn — og ætlast síðan til að þm. afgreiði þau í þeirri tímaþröng sem raun ber vitni..Hér er um að ræða brýn mál sem þm. vilja af skiljanlegum ástæðum reyna að greiða fyrir, en til þess þyrfti rýmri tíma en þetta, enda er það sannast sagna um afgreiðslu þessara þriggja verksmiðjufrv., sem afgreidd hafa verið í iðnn. Ed., að afgreiðsla iðnn. á málunum ber þess vott svo sannarlega að iðnn. hefur ekki haft nægan tíma til að fjalla um þau. Og ég vil að það komi fram hér, að fyrirvarar, sem iðnn.-menn hafa komið sér saman um við afgreiðslu þessara mála, stafa beinlínis af því að iðnn.-menn hafa ekki talið sig geta borið ábyrgð á afgreiðslu frv. í þeirri mynd sem þau voru lögð fram.