22.05.1981
Neðri deild: 106. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4887 í B-deild Alþingistíðinda. (5211)

320. mál, raforkuver

Stefán Valgeirsson:

Herra forseti. Þar sem ég er þess fullviss, að með samþykki þessarar till. nú minnka líkurnar fyrir því, að frjálsir samningar náist um virkjun Blöndu, og þar sem ég tel að forðast eigi að grípa til eignarnáms fyrr en fullreynt er að samningar náist ekki og sé því ekki tímabært að taka afstöðu til slíkrar till. segi ég nei.