22.05.1981
Efri deild: 121. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4949 í B-deild Alþingistíðinda. (5300)

312. mál, sjóefnavinnsla á Reykjanesi

Frsm. (Davíð Aðalsteinsson):

Herra forseti. Ákvæði til bráðabirgða við 312. málið, frv. til l. um sjóefnavinnslu á Reykjanesi, hefur tekið nokkrum breytingum frá því að það fór héðan úr hv. Ed. Enda þótt svo sé telur iðnn. Ed. ekki ástæðu til annars en samþykkja þá breytingu og mælir með samþykkt ákvæðisins til bráðabirgða eins og það liggur hér fyrir.