25.05.1981
Efri deild: 124. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 5009 í B-deild Alþingistíðinda. (5369)

Starfslok efri deildar

Karl Steinar Guðnason:

Herra forseti. Fyrir hönd okkar þdm. vil ég þakka forseta góðar óskir í okkar garð. Jafnframt vil ég þakka honum fyrir hönd okkar allra umburðarlyndi við okkur og í senn röggsama og réttláta fundarstjórn. Skrifstofustjóra Alþingis og starfsfólki öllu ber ég einnig þakkir okkar þdm. Starfsfólki þingsins, hæstv. forseta og fjölskyldu hans óska ég alls velfarnaðar á sumrinu. Ég bið hv. dm. að taka undir þá ósk og staðfesta hana með því að risa úr sætum. — [Dm. risu úr sætum.]