25.05.1981
Neðri deild: 110. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 5015 í B-deild Alþingistíðinda. (5383)

Starfslok neðri deildar

Forseti (Sverrir Hermannsson):

Þar sem þetta er síðasti fundur hv. deildar á þessu þingi þakka ég öllum hv. þdm. ágæta samvinnu og þolinmæði mér sýnda. Einnig þakka ég skrifstofustjóra og starfsliði öllu unnin störf. Þeim, sem eiga um langan veg heim að sækja, óska ég góðrar heimferðar og heimkomu og bið og segi að vér megum allir hittast heilir á hausti komanda.