25.05.1981
Sameinað þing: 90. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 5025 í B-deild Alþingistíðinda. (5400)

Þinglausnir

Forseti Íslands (Vigdís Finnbogadóttir):

Hæstv. ríkisstjórn. Forsetar Alþingis. Háttvirtir alþingismenn.

Gefið hefur verið út svofellt forsetabréf:

„Forseti Íslands gjörir kunnugt:

Alþingi, 103. löggjafarþing, lýkur störfum í dag, mánudaginn 25. maí l 981. Mun ég því slíta Alþingi í dag.

Gjört í Reykjavík, 25. maí 1981.

Vigdís Finnbogadóttir.

Gunnar Thoroddsen.

Forsetabréf um þinglausnir.“

Þannig hljóðar forsetabréf um þinglausnir.

Samkv. þessu bréfi, sem ég nú hef lesið, lýsi ég yfir því, að þessu þingi, sem nú hefur lokið störfum, er slitið. Óska ég þingmönnum velfarnaðar, þjóðinni allra heilla og bið alþingismenn að minnast fósturjarðar vorrar, Íslands, með því að rísa úr sætum.

Þingheimur stóð upp og forsrh., Gunnar Thoroddsen, mælti: „Heill forseta vorum og fósturjörð. Ísland lifi.“

Tóku þingmenn undir þau orð með ferföldu húrrahrópi.

Var síðan af þingi gengið.