13.11.1980
Sameinað þing: 19. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 693 í B-deild Alþingistíðinda. (550)

Umræður utan dagskrár

Salome Þorkelsdóttir:

Herra forseti. Ég vil nota þetta tækifæri til að taka undir orð hv. 3. landsk. þm. Hér er stórt mál og alvarlegt á ferðinni.Og ég vil taka undir það,að hér virðist vera um að ræða misrétti gagnvart öðru foreldri, þ.e. í þessu tilfelli föður. Ég vil leyfa mér að hvetja allshn. Nd. til að flýta afgreiðslu frv. til barnalaga svo að það geti fengið eðlilegan framgang í þinginu.