13.11.1980
Efri deild: 13. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 694 í B-deild Alþingistíðinda. (552)
85. mál, þingfararkaup alþingismanna
Frsm. (Ólafur Ragnar Grímsson):
Herra forseti. Eins og þm. er kunnugt var kosin í haust þingfararkaupsnefnd með sérstökum hætti. Hana skipa nú forsetar þingsins og formenn þingflokkanna. Var þessari nefnd falið að hafa forgöngu um samkomulag þingflokkanna um frv. það sem hér liggur fyrir til afgreiðslu um þingfararkaup alþm.
Það hafa á vegum þingsins farið fram verulegar umr. um þetta mál innan þingflokkanna. Það frv., sem hér liggur fyrir, er niðurstaða þess samkomulags sem gert hefur verið milli þeirra.
Nefndin hefur fjallað um þetta frv., og eins og hv. þm. er kunnugt eru á þessu efni ýmsar skoðanir innan þingsins, þótt niðurstaðan hafi orðið sú sem hér greinir. Í nefndinni ræddu menn ýmsar greinar frv., en niðurstaðan varð, í ljósi þess hvernig að þessu máli hefur verið unnið og hvernig það er til komið, að mæla með því við hv. d. að það verði samþykkt. Ég ætla þess vegna ekki að hafa langa framsöguræðu fyrir þessu áliti. Hv. þm. Jón Helgason, forseti Sþ., og hv. þm. Helgi Seljan, forseti þessarar deildar, eru fyrstu tveir flm. frv. og í Nd. mun forseti þeirrar deildar, Sverrir Hermannsson, mæla fyrir því. Í framsöguræðu 1. flm. komu fram helstu röksemdir sem liggja að baki því, að nú er farin sú leið að fela Kjaradómi ákvörðun um kjör alþm. með þeim hætti sem greint er í þessu frv.
Ég vil svo ítrekað lokum skilning á tveimur greinum frv. Í 1. gr. er kveðið á um það, að 1/12 hluti kaupsins komi til greiðslu 1. hvers mánaðar og er þar eðlilega átt við 1/12 hluta árskaups, en ekki heildarkaupsins fyrir kjörtímabilið þó hægt kunni að vera að lesa það út úr samhengi greinarinnar. Rétt er að taka það skýrt fram, að átt er við 1/12 hluta árskaups. Enn fremur er rétt að ítreka það, eins og kom fram hjá hv. 1. flm. frv., að í 11. gr. er ætlast til þess, að fram fari mat á vinnuframlagi þeirra þm. sem greinin tekur til.
Það er von okkar, að þetta frv. verði til þess að þing og þjóð verði ásáttari með það, með hvaða hætti þessum málum sé skipað, þótt sjálfsagt megi lengi deila um það, hvort þingið eigi að fela aðila utan þings ákvörðunarvald um þetta efni og þá með hvaða hætti, til hvaða atriða slíkt eigi að taka og hvernig beri að ákveða það. En eins og ég gat um áðan var það skoðun okkar nm. eftir umr. um málið á tveimur fundum nefndarinnar að leggja til að frv. yrði samþykkt í óbreyttri mynd.
Hv. þm. Eyjólfur Konráð Jónsson var fjarverandi afgreiðslu málsins eins og fram kemur í nál.