18.11.1980
Sameinað þing: 20. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 723 í B-deild Alþingistíðinda. (588)
46. mál, breytt verðgildi íslensks gjaldmiðils
Pétur Sigurðsson:
Herra forseti. Hér hefur komið fram að það væru hinar og þessar stofnanir, hinar þörfustu stofnanir, sem fjölluðu um þau vandamál sem ríkisstj. stendur frammi fyrir í sambandi við verðbólguþróunina. Ekki hefur þó verið minnst á þann félagsskapinn sem líklega stæði næst hæstv. forsrh. og rn. hans að leita til, en þá á ég við Sálarrannsóknafélag Íslands. Hann hefur nefnilega áður átt þátt í því, að kona nokkur var fengin norður að Kröflu til þess að ríða þar um á priki og leita að gufu, og mætti vel hugsa sér að fá hana aftur til þess að gera úttekt á aðgerðum ríkisstj. í verðbólgumálum.
Mér finnst ódrengilegt að vera ítrekað að ýta undir hv. þm. Guðmund J. Guðmundsson og spyrja um afstöðu hans til kaupmáttar, kjara launþega og verðbólgunnar almennt. Félag hans, Verkamannafélagið Dagsbrún, átti fulltrúa í Ríkisútvarpinu í gærkvöld sem hélt þar erindi um daginn og veginn. Sá maður hefur verið kjörinn á Alþýðusambandsþing við hlið Guðmundar J. Guðmundssonar. Hann skýrði frá því, að frá því í sept. 1978 hefði kaupmáttur rýrnað um 11.5%, minnir mig að hann hafi sagt. Og hann hafði hin verstu og háðulegustu orð um þá forustu sem væri fyrir þeim og þjóðinni allri í sambandi við baráttuna gegn verðbólgunni.