18.11.1980
Neðri deild: 18. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 757 í B-deild Alþingistíðinda. (619)

33. mál, málefni Flugleiða hf.

Ólafur Þ. Þórðarson:

Herra forseti. Ég hef ekki í annað sinn verið óánægður með stjórn forseta á atkvgr., en ég fæ ekki séð hvernig það fær staðist, eftir að upphafleg atkvgr. felldi innganginn að þessu öllu saman, að þá sé hægt að hafa atkvgr. um það sem á eftir kemur. Ég tek því ekki þátt í atkvgr.