19.11.1980
Neðri deild: 20. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 794 í B-deild Alþingistíðinda. (658)
Umræður utan dagskrár
Forseti (Sverrir Hermannsson):
Ég vil taka það fram, að varaforseta mínum, hv. 1. þm. Vesturl., hefur ekkert orðið á þegar hann gaf hæstv. landbrh. orðið í þessu máli.
Það liggur alveg ljóst fyrir, að það er föst siðvenja að í málaflokki og umr. um málaflokk viðkomandi ráðh. fær hæstv. ráðh. orðið eins fljótt og auðið er. Þetta er hér um bil ófrávíkjanleg regla, en forseti hefur þó auðvitað leyfi til að bregða út af henni. Eins og málum er háttað nú sé ég ekki að ástæða hafi verið til þess, þar sem mjög efnismikil ræða hafði verið flutt í málaflokknum sem hæstv. ráðh. taldi nauðsyn á að koma andsvörum við, og er málið, eins og ég sagði, tekið út af dagskrá.