20.11.1980
Sameinað þing: 22. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 804 í B-deild Alþingistíðinda. (686)
92. mál, efnahagsráðstafanir ríkisstjórnarinnar
Friðrik Sophusson:
Herra forseti. Það hefur verið vakin athygli á því, hvað hæstv. viðskrh. sagði í útvarpi í morgun. Eitt af því, sem kom fram í hans máli þar, var að hann teldi, að kjararýrnunin yrði 6% frá þessum tíma á þessu ári til sama tíma næsta árs, og hann byggði það á könnun. Ég spyr hæstv. viðskrh.: Hvaða könnun var það? Vill hann koma hér og segja frá því, hverjir könnuðu þetta mál fyrir hann? Það væri athyglisvert ef hann léti okkur vita á hvaða könnun þetta er byggt. Þetta má að vísu teljast til staðreyndar, en það er gott til þess að vita að einhver ríkisstofnun eða annar aðili hefur kannað þetta mál.
Auk þess sem mikið hefur verið talað um niðurtalningu sem ég tek lítið mark á og reyndar enginn orðið, þá er ljóst að opinberar stofnanir eru reknar með miklum halla. Þær þurfa að fá gjaldskrárhækkanir umfram það sem þær hafa beðið um. Það þýðir að vísitalan hækkar. Svar hæstv. ríkisstj. virðist vera það að breyta vísitölugrundvellinum. Um þetta hefur verið talað í nokkra mánuði. Engin svör fást. Hvar stendur það mál? Er það mál hjá Hagstofunni? Hvar stendur þetta mál?
Hæstv. forsrh. hefur lesið aftur stefnuræðu sína, og það væri út af fyrir sig ágætt að heyra hana aftur ef hún segði eitthvað, en það gerði hún ekki. Þar stóð aðeins að koma ætti í veg fyrir sjálfvirkni. En hvernig er það hægt án þess að gerbreyta vísitölukerfinu þannig að kjör skerðist? Þetta er fsp. í beinu framhaldi af þeirri sem varpað hefur verið fram til hæstv. forsrh.
Hér í þingsalnum situr einn ágætur hv. þm. sem heitir Ólafur Ragnar Grímsson. Hann sat í efnahagsnefnd á sínum tíma. Sú n. lauk störfum fyrir mánuðum, og þá var tilkynnt að niðurstöðurnar kæmu eftir eina viku. Sú vika er löngu liðin. Hann situr hér í þingsalnum og þegir. Þessi hv. þm. hefur stundum haft rænu á því að taka til máls, jafnvel óbeðinn. Nú bíða menn spenntir eftir því, hvort hann treystir sér til þess að segja hvað sú nefnd hafði á prjónunum, hvort hann þorir að koma hér upp í ræðustólinn og segja Alþýðusambandsfulltrúunum hvað gera skuli. Menn bíða eftir svari frá honum. Hann hefur stundum sýnt kjark. Þingheimur tekur jafnframt eftir því, að Guðmundur J. Guðmundsson er horfinn.