20.11.1980
Sameinað þing: 22. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 833 í B-deild Alþingistíðinda. (734)

Umræður utan dagskrár

Geir Hallgrímsson:

Herra forseti. Ég kveð mér aðeins hljóðs um þingsköp til að vekja athygli á því, að fyrst á þessum fundi tilkynnir forseti útbýtingu þskj. 93, máls nr. 86, till. til þál. um iðnþróunarstefnu, en þingmát eru orðin 118. Ég vil gjarnan óska skýringa á þessu.