25.11.1980
Sameinað þing: 24. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 894 í B-deild Alþingistíðinda. (797)
53. mál, rekstrar- og afurðalán landbúnaðarins
Matthías Bjarnason:
Herra forseti. Mér fannst svar hæstv. viðskrh. við fsp. Eyjólfs Konráðs Jónssonar vera vægast sagt mjög lélegt og léleg frammistaða hjá honum sem viðskrh. Hér er um að ræða framkvæmd á till. sem Alþingi hefur samþ. Það er ekki áskorun á ríkisstj. í þeirri till., heldur: „Alþingi ályktar að fela ríkisstj. að hlutast til um að settar verði reglur um rekstrar- og afurðalán landbúnaðarins, sem tryggi að bændur fái í hendur þá fjármuni, sem þeim eru ætlaðir, um leið og lánin eru veitt.“ Alþingi setur ráðherrum og þar með einnig viðskrh. fyrirmæli í þessum efnum. Hér er verið að fara í kringum málið eins og köttur í kringum heitan graut.
Það á að framkvæma skilyrðislaust vilja Alþingis í þessu máli, og það er ekki nokkur afsökun að bankarnir séu með tregðu, því að bankarnir eiga að hlýða Alþingi og ríkisstj., en ekki segja Alþingi og ríkisstj. fyrir verkum. Það er þetta sem er komið nóg af og allt of mikið er búið að gera af á undanförnum árum, að Alþingi er lítillækkað. Hér er um miklu stærra mál að ræða en þetta málefni landbúnaðarins. Það er líka um að ræða heiður Alþingis. Stendur Alþingi fyrir sínu eða stendur það ekki fyrir sínu? Ef ein ríkisstj. eða ráðh. vill ekki framfylgja viljayfirlýsingu Alþingis eða treystir sér ekki til þess, þá á hann auðvitað að segja af sér, sá sami ráðh. Og ef ríkisstj. sem situr telur eðlilegt að ráðh. framfylgi ekki skipunum Alþingis, þá á að bera það undir Alþingi, hvort sú ríkisstjórn nýtur virkilega trausts Alþingis sem þannig fer á bak við vilja þingsins.