25.11.1980
Sameinað þing: 24. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 896 í B-deild Alþingistíðinda. (802)
53. mál, rekstrar- og afurðalán landbúnaðarins
Fyrirspyrjandi (Eyjólfur Konráð Jónsson):
Herra . forseti. Mér skildist á hæstv. viðskrh. að hann mundi ætla að láta þessi lán renna út eftir gamla siðnum nú næstu daga. Nú er það upplýst, að nefndin, sem hefur verið að starfa að málunum, mun skila af sér áliti á morgun. Það er áskorun mín til hæstv. viðskrh., að hann fresti þessum greiðslum í tvo til þrjá daga og gangi eftir því að nýjar reglur verði settar hjá bönkunum með svipuðum hætti og hv. þm. Matthías Bjarnason gerði í bréfinu sem ég las upp úr áðan, þar sem Seðlabankinn setti reglurnar samdægurs, því að það var auðvitað einfalt mál. Það er einfalt að gera það með nákvæmlega sama hætti og gert er við sjávarútveginn. En hitt er kannske enn þá einfaldara, að viðskiptabankarnir færi þetta beint inn á reikninga bændanna og peningarnir komi aldrei nálægt afurðasölufélögunum.
Það er sem sagt áskorun mín til viðskrh., að hann bíði í tvo, þrjá daga og skipi bankastjórum og öðrum fyrir í þessu efni, því að það vald hefur hann. Og honum er meira að segja skylt að framfylgja því valdi frá Alþingi.