03.12.1980
Efri deild: 19. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1079 í B-deild Alþingistíðinda. (997)

35. mál, álagning opinberra gjalda

Lárus Jónsson:

Herra forseti. Mál það, sem hér er til umr. og afgreiðslu, er nánast tæknilegt atriði varðandi innheimtu opinberra gjalda á yfirstandandi ári. Við hv. þm. Eyjólfur Konráð Jónsson höfum skrifað undir nál. með fyrirvara til að undirstrika að samþykkt okkar á þessu frv., sem er tæknilegs eðlis, felur á engan hátt í sér samþykki okkar við skattaálagningarstefnu núv. hæstv. ríkisstj.