16.12.1981
Neðri deild: 25. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1626 í B-deild Alþingistíðinda. (1353)

Umræður utan dagskrár

Forseti (Alexander Stefánsson):

Áður en ég gef næsta manni orðið vil ég aðeins segja það, að það er komið að 42. máli aftur. Hins vegar vil ég undirstrika þær skýringar sem hér hafa komið fram. Ég hef gert ráðstafanir til þess, að forsrh. verði viðstaddur umræður um 42. mál, vegna þess að ég geri ráð fyrir að framhald umræðnanna beinist að honum. Ég vænti þess, að hann verði mættur innan fárra mínútna.