17.12.1981
Efri deild: 26. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1739 í B-deild Alþingistíðinda. (1381)

55. mál, lánsfjárlög 1982

Þorv. Garðar Kristjánsson:

Herra forseti. Ég hef flutt hér brtt. á þsk j. 224 um að 15. gr. falli niður. Ég varð ekki var við að hæstv. fjmrh. tjáði sig neitt um þessa brtt., og kannske mætti álykta sem svo að þögn væri samþykki.

Þá vil ég vekja athygli á því, ég held að ég fari rétt með, ég hef a. m. k. ekki orðið var við það, að brtt., sem lögð hefur verið fram á þskj. 228, hafi verið rædd hér eða gerð grein fyrir henni. Þó er það hvorki meira né minna en ríkisstj. sem ber fram þessa brtt. Ég vil spyrja hæstv. ráðh. hvort það megi vænta þess, að það verði mælt fyrir þessari brtt.