17.12.1981
Neðri deild: 26. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1742 í B-deild Alþingistíðinda. (1389)

136. mál, verðjöfnunargjald af raforku

Frsm. (Skúli Alexandersson):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir áliti meiri hl. iðnn. um frv. til l. um breytingu á lögum nr. 83/1974, um verðjöfnunargjald af raforku, ásamt síðari breytingum. Nefndin hefur fjallað um frv. og mælir meiri hl. n. með samþykki frv. eins og það kom frá Ed. Iðnn. hv. Ed. stóð saman að nál. og mælti með samþykkt frv. eins og það lá þar fyrir.

Þeir, sem mæla með samþykkt frv. án sérálits eru Magnús H. Magnússon, Páll Pétursson, Pálmi Jónsson, Guðmundur G. Þórarinsson ásamt þeim sem hér stendur.

Magnús H. Magnússon og Guðmundur G. Þórarinsson undirrita nál. með fyrirvara.

Jósef H. Þorgeirsson og Birgir Ísl. Gunnarsson skila séráliti.