18.12.1981
Neðri deild: 31. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1878 í B-deild Alþingistíðinda. (1560)

55. mál, lánsfjárlög 1982

Sighvatur Björgvinsson:

Herra forseti. Eins og kom fram hjá hv. 1. þm. Reykn. hefur við nánari athugun á þessu máli í dag komið í ljós að ekki séu föng á því að afgreiða málið fyrir jól. Hefur því orðið að samkomulagi að freista þess ekki, heldur að taka til við það, þar sem frá verður horfið, eftir jólaleyfi. Því tel ég enga ástæðu til þess að ræða nú við 1. umr. langt mál um þetta frv., heldur geyma það þar til málið kemur í nefnd til skoðunar, en mundi jafnframt vilja koma þeirri ósk á framfæri við formann hv. fjh.- og viðskn. þessarar deildar, að hann kallaði nefndina saman til starfa nokkru fyrr en fyrirhugað er að Alþingi komi saman að nýju að jólaleyfi loknu.