18.12.1981
Neðri deild: 31. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1879 í B-deild Alþingistíðinda. (1565)

Starfslok neðri deildar

Forseti (Sverrir Hermannsson):

Þetta er síðasti fundur fyrir jólahlé. Ég vil þakka hv. þdm. fyrir samstarfið það sem af er þessu þingi, varaforsetum sérstaklega, skrifurum vorum, skrifstofustjóra og starfsliði Alþingis öllu. Ég óska öllum gleðilegrar jólahátíðar og góðs árs. Þeim; sem eiga um langan veg heim að sækja nú, óska ég góðrar heimferðar og heimkomu og bið og segi að við megum allir heilir hittast á nýju ári að starfa á hinu háa Alþingi.