19.12.1981
Sameinað þing: 39. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1885 í B-deild Alþingistíðinda. (1585)
1. mál, fjárlög 1982
Viðskrh. (Tómas Árnason):
Herra forseti. Á miðju ári var ljóst að nægilegt fé var inni á fjárlagaliðnum Styrkur til olíunotkunar til húshitunar til að hækka olíustyrkinn. Áður en ákvörðun yrði tekin skipaði ég nefnd fulltrúa allra þingflokka til að endurskoða lögin um jöfnun og lækkun hitunarkostnaðar og til þess einnig m. a. að vera til ráðgjafar um hæð olíustyrksins á þessu ári. Í samræmi við tillögur nefndarinnar og eftir umfjöllun málsins í ríkisstj. hef ég ákveðið að hækka olíustyrkinn á 4. ársfjórðungi þessa árs úr 200 kr. uppi í 350 kr. svo og greiða viðbót við fyrri ársfjórðunga þannig að upphitunarkostnaður með olíu að frádregnum olíustyrk verði ekki hærri en sem svarar til 10% umfram upphitunarkostnað með rafmagni frá Rafmagnsveitum ríkisins. Með tilliti til þessa og svo hins, að nefndin starfar áfram að endurskoðun laganna og mér er sagt eftir athugun í rn. að nægilegt fjármagn sé á fjárlagafrv. til að greiða olíustyrkinn á næsta ári í samræmi við þessa ákvörðun, segi ég nei.