01.02.1982
Neðri deild: 35. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2093 í B-deild Alþingistíðinda. (1749)
182. mál, tollskrá o.fl.
Fjmrh. (Ragnar Arnalds):
Herra forseti. Eins og hv. þm. er kunnugt er það einn liðurinn í efnahagsráðstöfunum ríkisstj., sem tilkynning hefur verið gefin út um og útvarpsumr. fóru fram um s. l. fimmtudag, að tollar verði lækkaðir á nokkrum vörutegundum. Hér er um að ræða lækkun á tollum, sem nú eru 80%, í 40%, en vörutegundirnar eru: kæliskápar, frystikistur, eldhúsviftur, uppþvottavélar, þvottavélar, þurrkarar, strauvélar, ryksugur, viftur, hrærivélar og brauðristar og auk þess nokkur tæki sem þeim eru tengd, en einnig er hér um að ræða kæliskápa, þvottavélar og hrærivélar.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem lækkaðir eru tollar á nokkrum af þessum vörutegundum, þar sem vörugjald var fellt niður af kæliskápum, þvottavélum, hrærivélum og ryksugum um mitt s. l. ár. Það er stefna ríkisstj. að reyna að jafna aðflutningsgjöld og að því er nú unnið í sérstakri nefnd að undirbúa tillögur í þá átt. Má því segja að hér sé stigið spor í sömu átt og er í undirbúningi.
Eins og fram kemur í athugasemdum með þessu frv. er hér um tekjutap fyrir ríkissjóð að ræða sem nemur um 22 millj. kr. á heilu ári og er þá allt meðtalið, þ. e. bæði lækkun tolls, lækkun vörugjalds vegna tollalækkunar og lækkun söluskatts af sömu ástæðu þar sem söluskatturinn reiknast ofan á tollinn og vörugjaldið.
Herra forseti. Þegar samkomulag var gert við hv. stjórnarandstæðinga um útvarpsumr., sem fram fóru s. l. fimmtudag, var þess einnig getið, að væntanlega þyrfti að afgreiða eitt tollalagamál með hraða í þinginu, og var ekki talin þá ástæða til að ætla að nein fyrirstaða yrði á því. S. l. fimmtudag var svo þessi fyrirætlun kynnt fyrir formanni Alþfl., það náðist þá ekki í þingflokksformann Alþfl., og formann þingflokks Sjálfstfl. Töldu þeir að ekkert mundi verða því til fyrirstöðu að þetta litla lagafrv., sem er í sjálfu sér ákaflega einfalt mál, færi í gegnum báðar deildir þingsins í dag. Ég vænti þess, að svo geti orðið, þar sem það veldur vissum vandræðum að ekki skuli vera hægt að afgreiða þetta sem fyrst. M. a. lýsa þau vandamál sér í því, að það fólk, sem fyrir viku eða jafnvel fyrir lengri tíma ætlaði sér að kaupa þessi heimilistæki, en fékk boðskap um að til stæði tollalækkun, hefur auðvitað beðið með kaup á þessum tækjum nú um alllangt skeið. Getur ekki við svo búið staðið öllu lengur.
Herra forseti. Ég mælist sem sagt til þess, að á fundum deildarinnar hér á eftir verði gert hlé, þannig að nefnd gefist kostur á að fjalla um þetta mál svo það megi komast til Ed. síðar í dag, og vil leyfa mér að leggja til að frv. verði vísað til hv. fjh.- og viðskn.