02.02.1982
Efri deild: 38. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2144 í B-deild Alþingistíðinda. (1803)
182. mál, tollskrá o.fl.
Frsm. 2. minni hl. (Lárus Jónsson):
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðh. fyrir svörin.
Það var athyglisvert að hæstv. ráðh. minntist ekki á hvaða áhrif tollafgreiðslugjaldið mundi hafa á vísitölu. Hann kann að hafa gleymt því. (Fjmrh.: Það liggur ekki fyrir.) Það liggur ekki fyrir, segir hæstv. ráðh.
Ég hef aflað mér upplýsinga um það, hvernig vísitala framfærslukostnaðar út af fyrir sig er líkleg til að hækka á þessu ári miðað við það sem hægt er að ráða í þær hugmyndir hæstv. ríkisstj. að greiða niður vísitöluna með þessum hætti. Þjóðhagsstofnun telur að vísitala framfærslukostnaðar muni eftir sem áður hækka um 40–42%. En það er kannske athyglisvert í því sambandi, að hún telur að byggingarvísitala muni hækka um 45–47%. Í rauninni er því verið að búa til með þessum hætti viðmiðun, sem er víðs fjarri, og segja að almennur framfærslukostnaður venjulegrar fjölskyldu hækki ekki nema um 40–42% þó að svo ríflega sé slegið í með niðurgreiðslur sem nú er ætlunin að gera.
En eitt er þetta og annað hitt, að það kemur æ oftar fram þegar hæstv. ráðherrar eru spurðir hvaða áhrif hitt og þetta hafi, að þeir hafa engin svör vegna þess að það hefur ekkert verið kannað. Eins og fram kom við 1. umr. þessa máls hafði hagstofustjóri ekki einu sinni fengið upplýsingar um það frá hæstv. ríkisstj., hvernig hún hygðist greiða niður vísitöluna, haga niðurgreiðslum nú 1. febr. Hann hafði ekki upplýsingar um þetta í gær. Allt er þetta á sömu bók lært.