10.02.1982
Efri deild: 42. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2351 í B-deild Alþingistíðinda. (1964)

193. mál, veiting ríkisborgararéttar

Dómsmrh. (Friðjón Þórðarson):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til l. um veitingu ríkisborgararéttar. Að venju er lagt fram eitt frv. af þessum toga á hverju reglulegu Alþingi og er því hér með fylgt úr hlaði. Að öðru leyti þarf ekki sérstaklega að orðlengja um þetta frv. og leyfi ég mér að leggja til að því verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. allshn.