10.02.1982
Neðri deild: 39. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2371 í B-deild Alþingistíðinda. (1993)

178. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Magnús H. Magnússon:

Herra forseti. Ég styð allt, sem stuðlar að jöfnun á aðstöðu fólks á okkar ágæta landi, og þá ekki síst það, sem stuðlar að jöfnun á aðstöðu fólks eftir búsetu. Ég tel að þetta frv. sé spor í þá átt, að vísu ekki stórt, en spor í rétta átt, og styð það því eindregið.