15.02.1982
Efri deild: 43. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2417 í B-deild Alþingistíðinda. (2029)

Varamaður tekur þingsæti

Forseti (Helgi Seljan):

Mér hefur borist svohljóðandi bréf:

„Reykjavík, 11. febr. 1982.

Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Framsfl. í Reykjavík, Haraldur Ólafsson lektor, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.

Ólafur Jóhannesson.“

Haraldur Ólafsson hefur áður tekið sæti á Alþingi á þessu kjörtímabili og býð ég hann velkominn til starfa.