18.02.1982
Sameinað þing: 55. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2492 í B-deild Alþingistíðinda. (2141)
98. mál, almannavarnir
Frsm. (Jóhanna Sigurðardóttir):
Herra forseti. Allshn: hefur fjallað um till. til þál um eflingu almannavarna. Nefndin fékk umsagnir frá Sambandi ísl. sveitarfélaga, útvarpsráði, Slysavarnafélagi Íslands, Landssambandi hjálparsveita skáta og Almannavörnum ríkisins. Allir þessir aðilar mæla með samþykki till. þó einstaka athugasemdir komi fram við markmið þeirra efnisatriða sem sett eru fram í tillgr.
Eins og fram kemur í nál. heimsóttu nm. einnig aðalstöðvar almannavarnaráðs og bækistöð þess í Mosfellssveit, auk þess sem nefndin átti fund með almannavarnaráði. Á þeim fundi kom fram, að almannavarnaráð leggur sérstaka áherslu á nauðsyn þess að komið verði á fót birgðastöðvum Almannavarna í hverju kjördæmi landsins fyrir neyðarbirgðir á sviði slysahjálpar, auk þess sem brýnt er að auka alla þjálfunar- og fræðslustarfsemi á sviði almannavarna.
Niðurstaða allshn. var sú, að rétt væri að Alþingi kysi sjö manna nefnd sem fengi það verkefni að gera áætlun um eflingu almannavarna í landinu, en í tillögugreininni séu ekki sérstaklega tilgreind þau verksvið sem áætlunin taki til. Sjálfsagt er þó að sú nefnd, sem fær þetta verkefni, hafi hliðsjón af þeim efnisatriðum sem lögð eru til í tillgr., auk samráðs við almannavarnaráð um áætlanagerð. Allshn. leggur því fram brtt. á þskj. 344 sem hljóðar svo, með leyfi forseta:
„Alþingi ályktar að kjósa sjö manna nefnd til að gera áætlun um eflingu almannavarna í landinu.“
Leggur nefndin til að þáltill. verði samþykkt með þessari brtt. Fjarverandi afgreiðslu málsins voru hv. þm. Guðrún Helgadóttir og Steinþór Gestsson.