23.02.1982
Sameinað þing: 56. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2582 í B-deild Alþingistíðinda. (2198)

343. mál, framhaldsskólar

Menntmrh. (Ingvar Gíslason):

Herra forseti. Ég skal svara þessari fyrirspurn. Hún hljóðar þannig: „Hvenær má vænta þess, að frv. til l. um framhaldsskóla verði lagt fram?“ Þannig var spurningin. Það er rétt, sem fram hefur komið hjá hv. fyrirspyrjanda, að það hefur tekið lengri tíma en til stóð að leggja þetta frv. fram. En því hefur verið útbýtt í dag, frv. til l. um framhaldsskóla, og er á þskj. 366. Ég fer ekki frekar út í umr. að sinni, en ég vænti þess, að málið verði til umr. á morgun í Ed.