24.02.1982
Neðri deild: 45. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2632 í B-deild Alþingistíðinda. (2257)
205. mál, tekjuöflun vegna ráðstafana í efnahagsmálum
Halldór Blöndal:
Herra forseti. Hv. 12. þm. Reykv. spólaði nú pínulítið á því, hvernig hann ætti að útskýra fyrir mönnum af hverju hann væri á móti sinni eigin tillögu. En kjarni málsins er auðvitað sá, að þm. brast kjark til að standa með tillögu sinni þegar í ljós kom að hv. 6. þm. Suðurl. vildi taka undir með stjórnarandstöðunni um að hans mál næði fram að ganga. Tillagan hefði meirihlutafylgi í þessari deild ef tillögumaður sjálfur hefði kjark til að segja já. Það stendur ekki á okkur hinum sem eru samþykkir efni tillögunnar. Við segjum já. — Herra forseti. Ég segi já.