24.02.1982
Neðri deild: 46. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2636 í B-deild Alþingistíðinda. (2263)
205. mál, tekjuöflun vegna ráðstafana í efnahagsmálum
Albert Guðmundsson:
Herra forseti. Ég vil leyfa mér að ítreka fsp. sem ég bar fram við 2. umr. þessa frv. til l. um breytta tekjuöflun ríkissjóðs vegna ráðstafana í efnahagsmálum, — ítreka þá spurningu til hæstv. fjmrh., á hvaða stigi verðmyndunar þetta 1% afgreiðslugjald í tolli verður lagt á. Ef svo fer sem mig grunar og ég hef fengið staðfest að nokkru — (Forseti: Það er verið að beina fsp. til hæstv. fjmrh., gerið svo vel að athuga um að kalla hann hingað.) Er ekki best að ég bíði með minn málflutning hér, virðulegi forseti? Á ég að yfirgefa ræðustólinn til að hleypa einhverjum öðrum að á meðan — eða hvað vill forseti að ég geri? (Forseti: Á ekki fsp. hv. þm. brýnt erindi til hæstv. fjmrh.?) Erindið er brýnt, fsp. er mikilvæg og svar ráðh. ekki minna mikilvægt. (Forseti: Þá sé ég ekki annan kost en þann að hv. þm. geri hlé á máli sínu, ef hann vill svo vel gera, og við hinkrum við þar til hæstv. fjmrh. hefur lokið sér af í efra.)