25.02.1982
Sameinað þing: 57. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2665 í B-deild Alþingistíðinda. (2294)

Varamaður tekur þingsæti - rannsókn kjörbréfs

Frsm. (Jósef H. Þorgeirsson):

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur haft til athugunar kjörbréf Guðmundar Vésteinssonar sem er 2. varamaður Alþfl. í Vesturlandskjördæmi. Jafnframt hefur nefndin haft til athugunar símskeyti frá Gunnari Má Kristóferssyni, sem er 1. varaþm. Alþfl. í Vesturlandskjördæmi, en getur ekki vegna sérstakra anna heima fyrir tekið sæti á Alþingi.

Nefndin er sammála um að leggja til að kjörbréf Guðmundar Vésteinssonar verði metið gilt og kosning hans samþykkt.