08.03.1982
Neðri deild: 49. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2881 í B-deild Alþingistíðinda. (2428)

Varamaður tekur þingsæti

Forseti (Alexander Stefánsson):

Mér hefur borist svohljóðandi bréf:

„Reykjavík, 4. mars 1982.

Þar sem ég er á förum til útlanda í einkaerindum mun ég ekki geta sótt þingfundi á næstunni. Leyfi ég mér því með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varaþm. Framsfl. í Suðurlandskjördæmi, Böðvar Bragason sýslumaður, Hvolsvelli, taka sæti á Alþingi í fjarveru minni.

Þórarinn Sigurjónsson,

1. þm. Suðurl.“

Böðvar Bragason sýslumaður hefur áður átt sæti á Alþingi og þarf því ekki að taka kjörbréf hans til meðferðar. Ég býð hann velkominn til starfa á Alþingi.