15.03.1982
Efri deild: 55. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3053 í B-deild Alþingistíðinda. (2576)

3. mál, Sinfóníuhljómsveit Íslands

Forseti (Helgi Seljan):

Mér hafa borist um það óskir frá hæstv. menntmrh., að þessari umr. verði ekki lokið án þess að hann fái tækifæri til að tala hér í hv. deild. Hann er hins vegar ekki viðlátinn nú, en hefur óskað eftir að fá að taka til máls við þessa umr. á miðvikudag. Því hlýt ég að fresta umr. um þetta mál.