18.03.1982
Sameinað þing: 66. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3137 í B-deild Alþingistíðinda. (2710)

238. mál, mörk lögsagnarumdæma

Dómsmrh. (Friðjón Þórðarson):

Herra forseti. Þetta mál er til athugunar í dómsmrn. Við ræddum það m.a. á fundi þar sem stjórn Sýslumannafélagsins kom í rn. og flm. er fullkunnugt um. Hitt er annað mál, að það er nauðsynlegt að skoða þetta vandlega, því að það er víða óhagræði að þessari gömlu skiptingu. Hitt er hægara sagt en gert að breyta henni, nema þá að mjög vandlega athuguðu máli.